Kórónuveiran ( COVID -19) hefur verið að breiðast út og greindist meðal annars hér á landi á föstudaginn. Nú hefur Icelandair Group sent tilkynningu til Kauphallarinnar vegna útbreiðslu veirunnar og mögulegrar áhrifa hennar á rekstur og afkomu flugfélagsins.

„Í ljósi þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til um allan heim vegna útbreiðslu COVID -19 veirunnar, er eftirspurn eftir ferðalögum á ákveðin svæði í heiminum nú þegar að dragast saman, " segir í tilkynningu frá Icelandair Group . „Of snemmt er að segja til um möguleg áhrif þessarar þróunar á starfsemi Icelandair Group en þessi staða skapar aukna óvissu þegar kemur að áætlaðri rekstrarniðurstöðu félagsins fyrir árið 2020. Vegna þessarar óvissu er afkomuspá Icelandair Group fyrir árið 2020 sem félagið gaf út á markaðinn þann 6. febrúar sl. ekki lengur í gildi og telja stjórnendur félagsins ekki mögulegt að gefa út áreiðanlega afkomuspá á þessum tímapunkti."

„Útbreiðsla COVID-19 veirunnar og viðbrögð við henni eru að hafa áhrif á ferðahegðun á okkar markaðssvæði," er haft eftir Boga Nils Bogasyni, í tilkynningunni. „Vegna þess erum við að greina hugsanlegar sviðsmyndir og móta aðgerðir til að draga úr þeim áhrifum sem þessi þróun kann að hafa á starfsemi félagsins. Öll áhersla verður lögð á að lágmarka áhrif á viðskiptavini okkar en ef mótvægisaðgerðir koma til með að hafa áhrif á flugáætlun, munum við upplýsa um það um leið og slíkar ákvarðanir liggja fyrir. Ég legg áherslu á að öryggi og velferð farþega og starfsfólks okkar er ávallt í fyrirrúmi.“

Ýmsar ráðstafanir

Icelandair hefur gripið til ýmissa ráðstafana og aukið viðbragðsgetu innan félagsins til að bregðast við vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Félagið fylgist grannt með þróun mála, er í reglulegum samskiptum við sóttvarnarlækni og Landlæknisembættið og fylgir leiðbeiningum og verkferlum embættisins á hverjum tíma.

Einnig er félagið sem fyrr í nánu samstarfi við Medaire, sem er alþjóðleg læknaþjónusta sem sérhæfir sig í lækningum og forvörnum um borð í flugvélum og veitir ráðgjöf í rauntíma þegar veikindi koma upp og ef grunur kæmi upp um smit um borð. Þá fá áhafnarmeðlimir viðamikla þjálfun sem meðal annars felur í sér viðbrögð við smitsjúkdómum.

Áhersla er lögð á reglulega upplýsingagjöf til áhafna og farþega sem og aukna vöktun. Einnig hefur félagið farið yfir og eftir tilvikum uppfært verkferla og viðbragðsáætlanir í samvinnu við viðbragðsaðila hér á landi. Þá hefur verið gripið til varúðarráðstafana með viðbótarbúnaði um borð í flugvélum Icelandair, svo sem sótthreinsiefni, andlitsgrímum og hönskum.