Reykjaneshöfn hefur sent afkomuviðvörun til Kauphallar. Reykjaneshöfn hefur ekki tekist að standa við fjárhagslegar skuldbindingar á þessu ári allt frá því 1. maí 2010.

Í tilkynningu segir að um sé að ræða skráða verðbréfaflokka RNH 04 1 , 05 1 og RNH 08 1, auk annarra lána og skuldabréfa sem ekki eru skráð á markaði.

Um er að ræða samtals 219 milljónir króna.

Einnig er fyrirséð aðstofnunin muni ekki getað staðið skil á greiðslum þann 1. nóvember næstkomandi af skráðum skuldabréfaflokki RNH 08 1 samtals að fjárhæð 145milljónir króna. Þá hefur Reykjaneshöfn samið um lán frá Lánasjóð sveitarfélaga að fjárhæð 48milljónir króna. Lánið er til 14 ára og er tekið til að endurfjármagnaafborganir á lánum hafnarinnar í nóvember 2010 hjá Lánasjóðnum. Samningurinner gerður með fyrirvara um samþykki bæjarráðs Reykjanesbæjar. Reykjaneshöfn hefur ráðið fjármálaráðgjafa sér til liðsinnis og stefnt er aðþví að boða til fundar með lánardrottnum eins fljótt og auðið er.