Tilkynning þess efnis að Afl fjárfestingarfélag hf. hefði eignast 17,05% eignarhlut í breska iðnfyrirtækinu Low and Bonar plc. birtist á London Stock Exchange þann 15. nóvember.

Afl fjárfestingarfélag er dótturfélag Fjárfestingarfélagsins Atorku hf. Atorka á í dag rúmlega 99% af virku hlutafé í Afli.