Stefnt er að því að útboðsskilmálar fyrir aflandskrónuútboðið geti litið dagsins ljós öðrum hvorum megin við næstu mánaðarmót.

Ef sú tímasetning stendst þá ætti framkvæmd útboðsins að geta farið fram snemma í maí. Þetta kemur fram í viðtali DV við Lee Buchheit í dag. Buchheit hefur verið fenginn til að veita íslenskum stjórnvöldum ráðgjöf vegna útboðssins.