Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 114,2 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins 2011 samanborið við 103 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 11 milljarða króna eða 10,6% á milli ára. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands.

Aflaverðmæti botnfisks fyrstu níu mánuði ársins nam 67,6 milljörðum króna og dróst saman um 4,7% sé miðað við sama tímabili árið 2010. Verðmæti þorskafla var um 32,4 milljarðar og dróst saman um 2,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 8,4 milljörðum og dróst saman um 30,4%, en verðmæti karfaaflans nam 9,6 milljörðum, sem er 12% aukning miðað við sama tímabil árið 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 0,8% milli ára í 6,4 milljarða. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 7,6 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins sem er 0,6% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 58,9% milli ára og nam 35,6 milljörðum. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 49,3 milljörðum króna og jókst um 16,2% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar voru 43,9 milljarðar sem er 17,9% aukning frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam um 15 milljörðum króna, sem er nær sama upphæð og í janúar-september 2010.