Í mars síðastliðnum nam aflaverðmæti íslenskra skipa rúmum 15,1 milljarði sem er 21% minna en í mars í fyrra þegar það nam 19,2 milljörðum.

Minnkun botnfiskaflans nam 2,8 milljörðum og var hann 10,4 milljarðar í mars í ár. Verðmæti uppsjávaraflans dróst saman um rúm 25% og nam hann 3,8 milljörðum í ár en í mars í fyrra var hann 5,1 milljarður.

Ef miðað er við 12 mánaða tímabil frá apríl 2015 til mars 2016 dróst aflaverðmætið saman um 4,5% miðað við sama tímabil ári fyrr, og nam það tæpum 143 milljörðum króna á þessu tímabili. Samdrátturinn kemur til vegna samdráttar í uppsjávarafla sem hefur dregist saman um tæp 35% því verðmæti botnfiskaflans hefur aukist um 4,8% og flatfiskaflans um 43,5% á sama tíma.