Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 56,5 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2013 samanborið við 58,6 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um tæplega 2,1 milljarð króna eða 3,6% á milli ára. Kemur þetta fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Aflaverðmæti botnfisks var tæplega 33,8 milljarðar og dróst saman um 7,6% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 18,0 milljarðar og dróst saman um 9,2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 4,8 milljörðum og dróst saman um 14,1% en verðmæti karfaaflans nam rúmum 5,4 milljörðum, sem er 9,6% samdráttur frá fyrstu fjórum mánuðum ársins 2012. Verðmæti ufsaaflans jókst um 20,8% milli ára og nam rúmlega 2,9 milljarði króna í janúar til apríl 2013.

Verðmæti uppsjávarafla nam rúmum 18,1 milljarði króna í janúar til apríl 2013, sem er um 11,8% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla en aflaverðmæti loðnu nam 15,6 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins sem er 19,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti kolmunna jókst um 9,8% frá fyrra ári og var um 1,7 milljarðar krónar í janúar til apríl 2013. Aflaverðmæti flatfisksafla nam tæpum 2,9 milljörðum króna, sem er 27,7% samdráttur frá janúar til apríl 2012.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 32,3 milljörðum króna og dróst saman um 0,3% miðað við fyrstu fjóra mánuði ársins 2012. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 3,8% milli ára og var tæplega 7,7 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam rúmum 14,5 milljörðum í janúar til apríl og dróst saman um 7,3% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 1,5 milljarði króna, sem er 30,7% samdráttur frá árinu 2012.