Árið 2014 var afli íslenskra skipa tæp 1.077 þúsund tonn, 286 þúsund tonnum minni en árið 2013. Þetta kemur fram í ritinu „Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2014“ sem Hagstofa Íslands hefur gefið út. Aflaverðmæti nam rúmum 136 milljörðum króna og dróst saman um 11% frá fyrra ári.

Stærsti hluti aflans var verkaður á Austulandi, að megninu til uppsjávarafli sem þar var landað. Stærstur hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu, 19,1% og á Suðurnesjum, 13,4%.

Verðmæti aukaafurða sem féllu til við vinnslu fiskaflans nam tæpum 5 milljörðum króna á árinu 2013 og stóð nokkurnveginn í stað á milli ára. Verðmæti aukaafurða telst ekki með inni í heildaraflaverðmæti.

Hægt er að lesa rit Hagstofunnar hér .