Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 9 milljörðum króna í janúar 2011 samanborið við 8,3 milljarða í janúar 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 669 milljónir eða 8% á milli ára, samkvæmt gögnum Hagstofunnar .

Aflaverðmæti botnfisks var 5,6 milljarðar og dróst saman um 20,3% frá janúar í fyrra þegar aflaverðmætið nam 7 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 3,2 milljarðar og dróst saman um 23,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 827 milljónum og dróst saman um 35,3% en verðmæti karfaaflans nam 660 milljónum, sem er 30,4% aukning frá janúar 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 20,9% milli ára var 314 milljónir í janúar 2011.

Verðmæti uppsjávarafla nam um 3 milljörðum króna í janúar 2011, sem er um 304% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist af loðnuafla að verðmæti 2,5 milljarðar króna, en engin loðna veiddist í janúar 2010. Aflaverðmæti flatfisksafla nam 346 milljónum, sem er 34,4% samdráttur frá janúar 2010.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 5,6 milljörðum króna í janúar og jókst um 43,8% miðað við janúar 2010. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 27,4% milli ára og var ríflega 1,5 milljarðar í janúar 2011. Aflaverðmæti sjófrystingar nam tæpum 1,6 milljörðum í janúar og dróst saman um 4,7% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 315 milljónum, sem er 56,2% samdráttur frá janúar 2010.

Hagstofan hefur endurskoðað bráðabirgðatölur fiskafla ársins 2010. Heildarafli íslenskra skipa var 1.063.326 tonn og aflaverðmætið tæpir 133 milljarðar króna. Þar af var þorskafli 178.516 tonn að verðmæti 44,6 milljarðar króna, ýsuafli  64.942 tonn að verðmæti 15,2 milljarðar króna, síldaraflinn 254.474 tonn að verðmæti 10,9 milljarðar og makrílaflinn 122.031 tonn að verðmæti 7,8 milljarðar króna.