Verðmæti sjávarafla íslenskra skipa í júlí nam tæplega 10 milljörðum króna sem er um 20% aukning samanborið við júlí 2017. Verðmæti botnfiskaflans nam 6,2 milljörðum og jókst um 22,2%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Aflaverðmæti þorsks var tæpir 4 milljarðar sem er aukning um 28,2% samanborið við júlí 2017. Verðmæti flatfisktegunda nam rúmum 1,5 milljarði og jókst um 27,8% miðað við sama mánuð í fyrra. Verðmæti uppsjávarafla nam ríflega 1,9 milljarði sem er 17,4% meira en í júlí 2017.

Á 12 mánaða tímabili, frá ágúst 2017 til júlí 2018, nam aflaverðmæti úr sjó rúmum 124 milljörðum króna sem er 11% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr.