Verðmæti sjávarafla íslenskra skipa í maí nam 11,6 milljörðum króna sem er 4,5% aukning samanborið við maí 2017. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Verðmæti botnfiskaflans nam tæpum 8,1 milljarði og dróst saman um 4,6%. Verðmæti flatfisktegunda nam rúmum 1,3 milljörðum sem er 32,5% aukning miðað við sama tíma í fyrra. Verðmæti uppsjávarafla sem var nær eingöngu kolmunni nam rúmum 1,8 milljörðum samanborið við tæpa 1,3 milljarða í maí 2017. Verðmæti skel- og krabbadýra var rúmar 359 milljónir króna, nánast óbreytt miðað við maí 2017.

Á 12 mánaða tímabili, frá júní 2017 til maí 2018, nam aflaverðmæti úr sjó rúmum 122 milljörðum króna sem er 6,3% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr.