Verðmæti afla upp úr sjó nam tæpum 16,2 milljörðum í febrúar, 41,7% hærra en í febrúar 2014, samkvæmt nýrri frétt frá Hagstofu Íslands . Vegur þar þyngst aflaverðmæti loðnu sem nam tæpum sex milljörðum og jókst um fjóra milljarða samanborið við febrúar 2014. Aflaverðmæti þorskafla nam 6,2 milljörðum króna sem er ríflega 24% aukning frá sama tíma í fyrra.

Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabili frá mars 2014 til febrúar 2014 nam 142,6 milljörðum og er nánast óbreytt miðað við 12 mánaða tímabil árið áður.