Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 13,8 milljörðum króna í mars. Til samanburðar var aflaverðmæti í febrúar 9 milljarðar króna. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Verðmæti botnfiskaflans var um 9,7 milljarðar króna og þar af var verðmæti þorskaflans rúmir 6,4 milljarðar. Aflaverðmæti uppsjávartegunda var tæpir 3,2 milljarðar króna og var að mestu leyti loðna. Verðmæti flatfiskafla nam tæplega 820 milljónum króna og verðmæti skelfiskafla tæpum 116 milljónum.

Á 12 mánaða tímabili, frá apríl 2017 til mars 2018, nam aflaverðmæti úr sjó tæplega 119 milljörðum króna og stendur því í stað sé miðað við sama tímabil árið á undan.