Aflaverðmæti úr sjó nam tæpum 14 milljörðum í júlí sem er 35,6% aukning samanborið við júlí í fyrra. Þar af var verðmæti botnfiskaflans 9,6 milljarðar og jókst um 49,2% en aukning varð í aflaverðmæti allra helstu botnfisktegunda. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands .

Verðmæti uppsjávarafla nam rúmlega 3,3 milljörðum króna og jókst um 73,4%, mestmegnis vegna sölu á makríl. Aflaverðmæti flatfisktegunda nam 782 milljónum og verðmæti skelfiskafla var 253 milljónir.

Verðmæti afla sem seldur var í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam tæpum 6,2 milljörðum króna í júlí síðastliðnum. Verðmæti sjófrysts afla nam tæpum 5,3 milljörðum og verðmæti afla sem seldur var á markað til vinnslu innanlands nam rúmum 1,8 milljörðum.

Á 12 mánaða tímabili, frá ágúst 2018 til júlí 2019, nam aflaverðmæti úr sjó tæplega 140 milljörðum, sem er 11,7% aukning miðað við sama tímabil árið áður.