Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fiskistofu var aflaverðmæti úr sjó tæplega 13,5 milljarðar króna í apríl, sem er 16% meira en í apríl 2018. Frá þessu er greint í frétt á vef Hagstofunnar .

Verðmæti botnfiskaflans var tæpir 10,9 milljarðar og jókst um 28,1% miðað við apríl árið áður. Þar af nam verðmæti þorskaflans 5,8 milljörðum sem er 23,3% aukning.

Verðmæti landaðrar ýsu jókst einnig umtalsvert, úr 861 milljón króna í 1.784 milljónir. Uppsjávarafli dróst saman um 22,7% og var að mestu kolmunni. Aflaverðmæti flatfisktegunda var 842 milljónir króna og jókst frá fyrra ári.

Á 12 mánaða tímabili frá maí 2018 til apríl 2019 jókst aflaverðmætið um 9,2% miðað við sama tímabil ári fyrr.