Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,2 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2013 samanborið við 30,3 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega 111 milljónir króna eða 0,4% á milli ára. Kemur þetta fram í tölum Hagstofunnar.

Aflaverðmæti botnfisks var tæplega 17 milljarðar og dróst saman um 2,0% frá sama tíma í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 9,4 milljarðar og dróst saman um 4,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 2,6 milljörðum og dróst saman um 7,4% en verðmæti karfaaflans nam 2,5 milljörðum, sem er 2,3% aukning frá fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012. Verðmæti ufsaaflans jókst um 14,5% milli ára og nam rúmlega 1,1 milljarði króna í janúar til febrúar 2013.

Verðmæti uppsjávarafla nam rúmum 11,9 milljörðum króna í janúar til febrúar 2013, sem er um 7,0% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla en nær enginn annar uppsjávarafli var veiddur á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 1,3 milljörðum króna, sem er 31,1% samdráttur frá janúar til febrúar 2012.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 18,6 milljörðum króna og dróst saman um 1,3% miðað við fyrstu tvo mánuði ársins 2012. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um hálft prósent milli ára og var tæplega 3,8 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam rúmum 6,9 milljörðum í janúar til febrúar og jókst um 7,6% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 727 milljónum króna, sem er 30,2% samdráttur frá árinu 2012.