Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 131 milljarði króna á árinu 2010 samanborið við rúma 115 milljarða á árinu 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 13,7% á milli ára.

Hagstofan birtir í dag gögn um aflaverðmæti ársins 2010.

Aflaverðmæti botnfisks var 93,5 milljarðar króna á árinu 2010 og jókst um 13,6% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam 82,3 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 44,6 milljarðar og jókst um 20,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 15,2 milljörðum og dróst saman um 1% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 12 milljörðum, sem er 20% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 9,2% milli ára og nam 8,5 milljörðum á árinu 2010. Verðmæti annars botnfisks jókst í heild um 7,9% milli ára

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 9,2 milljörðum króna á árinu 2010, sem er 6,6% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 21,1% milli ára og nam 26 milljörðum. Verðmæti síldaraflans á árinu 2010 nam tæpum 10,9 milljörðum sem er 14,6% samdráttur frá árinu 2009. Verðmæti makríls nam 7,8 milljörðum á árinu 2010 samanborið við 4,5 milljarða árið áður.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 52,8 milljörðum króna á árinu 2010 og jókst um 22,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti sjófrystingar var 49,3 milljarðar, sem er 19,1% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 22,9% milli ára og var um 18,8 milljarðar.

Nánar á vef Hagstofu Ísland s.