Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 54 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2008 samanborið við 52,2 milljarða á sama tímabili árið 2007.

Aflaverðmæti hefur aukist um 1,8 milljarða eða 3,4% á milli ára. Aflaverðmæti í júlí nam 8,7 milljörðum miðað við 5,7 milljarða í júlí 2007.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að aflaverðmæti botnfisks janúar til júlí 2008 nam 39,2 milljörðum og jókst um 2,4% miðað við sama tímabili árið 2007.

Verðmæti þorskafla var 19,4 milljarðar og dróst saman um 1,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 8,9 milljörðum, jókst um 17,2% og verðmæti karfaaflans nam 3,9 milljörðum sem er 9,4% samdráttur miðað við fyrstu sjö mánuði ársins 2007.

Þá nam verðmæti flatfiskafla janúar til júlí 3,6 milljörðum og jókst um 22,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 10,2 milljörðum sem er svipað og fyrstu sjö mánuði ársins 2007.   Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 21,9 milljarði króna sem er samdráttur um 1,4 milljarða eða 6,1% frá fyrra ári.

Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 6,5%, nam 8,1 milljarði fyrstu sjö mánuði ársins.

Aflaverðmæti sjófrystingar nam 15,8 milljörðum, jókst um 12,5% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,6 milljörðum sem er 29,9% aukning frá sama tímabili árið 2007.