Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 4,7 milljörðum króna í janúar 2008 samanborið við 5,8 milljarða í janúar 2007. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 1,1 milljarð eða 18,3% milli ára.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar voru í morgun birtar tölur um aflaverðmæti í janúarmánuði.

Aflaverðmæti botnfisks var 3,7 milljarðar en var 4,6 milljarðar í janúar 2007 og er samdrátturinn því 18,7%. Verðmæti þorskafla var 1,9 milljarðar og var það samdráttur um 25,1%. Aflaverðmæti ýsu nam 1,1 milljarði, sem er 11,9% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 9,6%, í 247 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 10,1%, nam 220 milljónum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 18,2% og nam 796 milljónum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 321 milljón.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 1,8 milljarðar króna. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam 1,0 milljarði. Aflaverðmæti sjófrystingar var rúmur milljarður og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 758 milljónum.