Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrsta ársfjórðungi nam 24,8 milljörðum króna, á á sama tímabili í fyrra nam aflaverðmæti 19,2 milljörðum. Aukning aflaverðmætis nemur því 5,6 milljörðum, eða um 29% milli ára, að því er kemur fram hjá Hagstofu Íslands.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið 17,9 milljarðar miðað við 14,7 milljarða á sama tíma árið 2006 og er því um 21,6% aukningu að ræða. Aflaverðmæti ýsu nam 3,5 milljörðum, sem er 26,5% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 21,5%, var 896 milljónir. Verðmæti þorskafla var 10,6 milljarðar og jókst um 24,2%.

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands, var 11,8 milljarðar króna, sem er auking um 3,7 milljarða eða 45,8%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 43,8%, var 4,5 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 6 milljarðar og jókst um 1,8% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 2,1 milljarði sem er 20,2% aukning, segir í tilkynningu hagstofunnar.