Samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands nemur aflaverðmæti íslenskra skipa 32,3 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs samanborið við 25,5 milljarða á sama tímabili 2006. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,9 milljarða eða 27% milli ára. Aflaverðmæti aprílmánaðar nam 7,2 milljörðum en í apríl í fyrra var verðmæti afla 6,2 milljarðar.

"Aflaverðmæti botnfisks var í lok apríl orðið 24 milljarðar miðað við 20 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 20,1% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 13,5 milljarðar og jókst um 23,4%. Aflaverðmæti ýsu nam 4,9 milljörðum, sem er 27,9% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 15,5%, var 1,4 milljarðar króna.
Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 21,7%, nam 1,4 milljarði króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 96,3% og nam 6,9 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra," segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Þar kemur einnig fram að verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands, var 15 milljarðar króna, sem er auking um 4,8 milljarða eða 47,3%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 37,2%, var 5,7 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 8,2 milljarðar og jókst um 1,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 2,8 milljörðum sem er 15,6% aukning.