Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 15,2 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2007 samanborið við 11,3 milljarða á sama tímabili 2006. Í frétt Hagstofunnar kemur fram að aflaverðmæti hefur aukist um 3,9 milljarða eða 34,7% milli ára.

Aflaverðmæti febrúarmánaðar nam 9,5 milljörðum en í febrúar í fyrra var verðmæti afla 7,7 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok febrúar orðið 10,5 milljarðar miðað við 8,1 milljarð á sama tíma árið 2006 og er því um 29,4% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 6,2 milljarðar og jókst um 22%. Aflaverðmæti ýsu nam 2,2 milljörðum, sem er 54,9% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 23,3%, var 465 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 15,2%, nam 678 milljónum. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 74,1% og nam 4 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 3,4 milljörðum samanborið við 2 milljarða í fyrra.

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands, var 7,2 milljarðar króna, sem er auking um 2,4 milljarða eða 48,6%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 46,9%, var 2,8 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 3,5 milljarðar og jókst um 2,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 1,4 milljörðum sem er 66,2% aukning segir í frétt Hagstofunnar.