Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 46 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2006 samanborið við 42,2 milljarða á sama tímabili 2005 samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti hefur aukist um 3,8 milljarða eða 9,1%. Aflaverðmæti júlímánaðar nam 5,8 milljörðum en í júlí í fyrra var verðmæti afla 4,9 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júlí orðið 34,5 milljarðar miðað við 28,5 milljarða á sama tíma árið 2005 og er því um 21,3% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 16,2 milljarðar og jókst um 6,1%. Aflaverðmæti ýsu nam 6,5 milljörðum sem er 24,9% aukning og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 80,4%, var 2,6 milljarðar. Verðmæti flatfiskafla jókst um 1,7% milli ára, nam 3,5 milljörðum. Aflaverðmæti kolmunna í júlílok var orðið 3,3 milljarðar samanborið við tæpa 1,4 milljarða í fyrra segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu var 17,9 milljarðar króna sem er nánast óbreytt frá fyrra ári, en verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 26,7%, var 7,3 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 14,8 milljarðar og jókst um 9,6% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 4,8 milljörðum sem er 18,2% aukning á milli ára.