Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 45 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2008 samanborið við 46,6 milljarða á sama tímabili árið 2007.

Aflaverðmæti hefur dregist saman um 1,6 milljarða eða 3,4% á milli ára. Aflaverðmæti í júní nam 5,3 milljörðum miðað við 6,1 milljarð í júní 2007.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að aflaverðmæti botnfisks janúar til júní 2008 nam 34,7 milljörðum og jókst um 0,6% miðað við sama tímabili árið 2007.

Verðmæti þorskafla var 17,9 milljarðar og dróst saman um 2,5% frá fyrra ári.

Aflaverðmæti ýsu nam 7,8 milljörðum, jókst um 17,4% og verðmæti karfaaflans nam 3,3 milljörðum sem er 11,1% samdráttur miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2007.

Þá nam verðmæti flatfiskafla janúar til júní 3 milljörðum og jókst um 15,3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 6,7 milljörðum sem er 24,6% samdráttur miðað við sama tímabil árið 2007.

Minni afli seldur til vinnslu

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 18,2 milljarði króna sem er samdráttur um 3,1 milljarða eða 14,7% frá fyrra ári.

Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 6,6%, nam 7,4 milljörðum fyrstu sex mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 12,6 milljörðum, jókst um 4,0% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 5,6 milljörðum sem er 29,3% aukning frá sama tímabili árið 2007