Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 63,9 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2006, samanborið við 57,4 milljarða á sama tímabili 2005, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Aflaverðmæti hefur aukist um 6,4 milljarða eða 11,2%. Aflaverðmæti októbermánaðar nam 5,8 milljörðum en í október í fyrra var verðmæti afla fimm milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið 48,2 milljarðar miðað við 39,1 milljarð á sama tíma árið 2005 og er aukningin því 23,3%. Verðmæti þorskafla var 22,3 milljarðar og jókst um 9,7%. Aflaverðmæti ýsu nam 9,6 milljörðum, sem er 29,5% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 72,2%, var 3,9 milljarðar.

Verðmæti flatfiskafla jókst um 2% milli ára, nam 4,5 milljörðum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 17,6% milli ára og nam 10,3 milljörðum. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 1,8 milljarða eða 30,3% og verðmæti loðnu dróst saman um 54% eða 2,6 milljarða. Aflaverðmæti kolmunna var 3,6 milljarðar samanborið við tæpa 1,4 milljarða í fyrra.

Verðmæti rækju var í októberlok orðið 287 millj. kr. samanborið við 784 millj. kr. í fyrra, sem er samdráttur um 63,4%.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 24,2 milljarðar króna sem er aukning um 1,8 milljarða eða 8,3%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 31,7%, var 10,1 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 21 milljarður og jókst um 3,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,8 milljörðum sem er 18,3% aukning.