Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 79,7 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2008 samanborið við 68,9 milljarða á sama tímabili árið 2007 að því er kemur fram í tölum Hagstofunnar. Aflaverðmæti hefur aukist um 10,7 milljarða eða 15,6% á milli ára. Aflaverðmæti í október nam 9,3 milljörðum miðað við 6,1 milljarð í október 2007.

Aflaverðmæti botnfisks frá janúar til október 2008 nam 56,6 milljörðum og jókst um 9,6% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var 26 milljarðar og jókst um 3,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 12,8 milljörðum, jókst um 7,8% og verðmæti karfaaflans nam 6,9 milljörðum sem er tæp 30% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti ufsaaflans jókst einnig umtalsvert, nam tæpum 5 milljörðum sem er 40,5% aukning miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til október nam 4,9 milljörðum og jókst um 29,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 17,1 milljarði sem er 35,2% aukning miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2007. Verðmæti síldaraflans janúar til október nam tæpum 8 milljörðum sem er 107,5% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti makríls jókst einnig mikið á milli ára, nam 4,6 milljörðum samanborið við 1,6 milljarð fyrstu tíu mánuði ársins 2007.   Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 30,3 milljörðum króna sem er aukning um 6,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 1,7% og nam 10,9 milljörðum fyrstu tíu mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 26 milljörðum, jókst um 27,7% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 9,8 milljörðum sem er 36,1% aukning frá sama tímabili árið 2007.