Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 62,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2007 samanborið við 58,3 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 4 milljörðum króna eða 6,9% milli ára. Aflaverðmæti septembermánaðar var 4,3 milljarðar og lækkar um 1,6 milljarð frá september í fyrra.

Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands var aflaverðmæti botnfisks í lok september 46,7 milljarðar miðað við 43,6 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 7,1% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 23 milljarðar og jókst um 14%. Aflaverðmæti ýsu nam 10,4 milljörðum, sem er 21,1% aukning, og ufsaaflinn dróst saman að verðmæti um 12,1%, var 3,1 milljarðar króna.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17,1%, nam 3,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 16,8% og nam 11,2 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra, kolmunna að verðmæti 3 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006 og síld að verðmæti 2,4 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 26,5 milljarðar króna, sem er aukning um 4,4 milljarða eða 19,9%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 12,9%, var 10,2 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 17,7 milljarðar og dróst saman um 8,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,4 milljörðum sem er 4,3% aukning.