Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 5,7 milljörðum króna í janúar 2007 samanborið við 3,6 milljarða í janúar 2006 samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.Aflaverðmæti hefur aukist um 2,1 milljarða eða 58,8% milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var 4,6 milljarðar en var 3 milljarðar í janúar 2006 og er aukningin því 50,9%. Verðmæti þorskafla var 2,4 milljarðar og jókst um 34,1%. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 1 milljarði, sem er 57,4% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 66,3%, var 221 milljón. Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 25,4%, nam 245 milljónum. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 299,4% og nam 866 milljónum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 773 milljónum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 2,3 milljarðar króna. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam 1,3 milljarði. Aflaverðmæti sjófrystingar var 1,2 milljarðar og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 693 milljónum.