Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 54 milljörðum króna á fyrri helming ársins 2009, samanborið við rúmlega 45 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 8,4 milljarða eða 18,6 % á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 40 milljarðar á árinu sem er aukning um 15,1% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 35 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 19 milljarðar og jókst um 5,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 8 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára.

Verðmæti karfaaflans nam rúmum 5 milljörðum, sem er 55% aukning frá fyrstu sex mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 13,6% milli ára í tæpa 3 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 36,5% miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2008. Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 5 milljörðum króna í janúar til júní 2009, sem er 69% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 16% milli ára og nam tæpum 8 milljörðum króna á fyrri hluta ársins.

Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 2,6 milljörðum samanborið við 1,1 milljarð í fyrra og makríl að verðmæti 2,2 milljarðar samanborið við 1,1 milljarð 2008. Loðnuafli dróst saman um 82% og var aflaverðmætið 341 milljónir króna samanborið við 1,8 milljarða árið áður.    Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands, HÉR