Afleiðing þjóðnýtingar Glitnis teygir anga sína víða.

Hið kanadíska sjávarréttafyrirtæki Clearwater Fine Foods  varð að hverfa frá yfirtöku á Clearwater Seafoods Income fund vegna þess þjóðnýtingar Glitnis, að því er fram kemur í frétt The Chronicle Herald

Bankinn ætlaði að koma að fjármögnun yfirtökunnar en ekki fundust aðrir lánveitendur til þess að hlaupa undir bagga efir fall bankans. Ferlið hafði staðið yfir í tíu mánuði, segir í fréttinni.

Fram kom í fréttinni að Glitnir ætlaði að  fjármagna einungis 10% hlut af heildarláninu sem hljóðaði upp á 250 milljónir Kanadadollara. Haft er eftir forstjóra Clearwater Fine Foods að lánveitendur haldi að sér höndum.