Ríkisstjórnin tilkynnti í morgun tilslakanir á sóttvarnarreglum sem fela meðal annars í sér að almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 50 manns og nándarregla fer úr 2 metrum í 1 metra frá og með morgundeginum. Þá verður stefnt að frekari afléttingum á næstu vikum og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur að hægt verði að aflétta öllum takmörkunum um miðjan mars miðað við núverandi þróun, að því er kemur fram í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins.

Rýmkaðar verða reglur um veitingastaði, þar með talið krám og skemmtistöðum sem verður nú heimilt að hleypa viðskiptavinum inn til kl. 23 en gestum gert að yfirgefa staðana að miðnætti.

Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði verður heimilt að hafa opið með 75% afköstum en síðustu vikur hefur þeim verið heimilt að starfa á 50 afköstum. Þá verður áhorfendum leyfðir á íþróttakeppnum á ný.

Hámarksfjöldi í verslunum fer aftur upp í 500 en hann hefur miðast við 200 manns síðustu tvær vikurnar. Grímuskylda verður enn við lýði en miðast nú við 1 metrra nándarreglu.

Fram kemur að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hafi vikið lítillega frá tillögum sóttvarnalæknis, meeð því að láta nýju reglurnar taka gildi fyrr, lengja opnunartíma um tvær klukkustundir í stað einnar og hækka hámarksfjölda í verslunum. Reglugerðin gildir í fjórar vikur eða til 24. febrúar.

Gott samfélagslegt ónæmi eftir tvo mánuði

Þórólfur leggur fram áætlun um afléttingu opinberra sóttvarnaaðgerða í skrefum. Hann telur að búast megi við fjölgun smita vegna afléttinga sem getur haft í för með sér fjölgun þeirra sem veikjast alvarlega.

„Jafnframt geti starfsemi margra fyrirtækja raskast vegna veikinda starfsmanna. Neyðarástand geti því skapast á mörgum vinnustöðum sem krefjist sérstakra úrræða og fyrirtæki þurfi að vera undir það búin að starfa í einhvern tíma með skertu vinnuafli.“

Þórólfur gerir ráð fyrir að gott samfélagslegt ónæmi geti náðst eftir tæpa tvo mánuði. Því sé skynsamlelgt að miða við að um miðjan mars verði öllum tökmörkunum aflétt svo fremi sem ekki komi upp ný afbrigði veirunnar eða að aukning verði á alvarlegum veikindum sem valdi mikllu álagi á heilbrigðiskerfið.

Breytingar frá og með 29. janúar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fari úr 10 í 50 manns.
  • Nándarregla fari úr 2 metrum í 1 metra.
  • Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af nándarreglu.
  • Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði verði heimilt að hafa opið með 75% afköstum.
  • Íþróttakeppnir verði áfram heimilar með 50 þátttakendum og áhorfendur séu leyfðir á ný.
  • Hámarksfjöldi í verslunum geti mest orðið 500 manns.
  • Skemmtistöðum, krám, spilastöðum og spilakössum verði heimilað að opna á ný.
  • Veitingastöðum, þ.m.t. krám og skemmtistöðum, verði heimilt að hleypa nýjum viðskiptavinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfirgefa staðina kl. 00.00.
  • Á sitjandi viðburðum verði heimilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, viðhalda skuli 1 metra nándarreglu milli óskyldra aðila auk grímuskyldu. Ekki verði þörf á hraðprófum.
  • Í skólum verði óbreyttar takmarkanir, þó þannig að þær verði aðlagaðar framangreindum tilslökunum eftir því sem við á.
  • Reglugerðin gildi í tæpar fjórar vikur til og með 24. febrúar.