Landaður afli íslenskra fiskiskipa í janúar 2020 var 35,8 þúsund tonn sem er 23% minni afli en í janúar í fyrra. Botnfiskafli dróst saman um tæp 16 þúsund tonn eða 37%. Aukning varð í uppsjávarafla þar sem rúm 6 þúsund tonn af kolmunna veiddust, en enginn kolmunni hafði veiðst í janúar 2019. Greint er frá þessu á vef Hagstofunnar .

Þar segir jafnframt að heildarafli á 12 mánaða tímabili frá febrúar 2019 til janúar 2020 hafi verið 1.038 þúsund tonn sem sé 13% minna en fyrir sama tímabil ári áður.