Heildarafli íslenskra skipa var 5,5% meiri í ágúst 2014 en í sama mánuði í fyrra samkvæmt tölum Hagstofunnar . Afli jókst í öllum botnfisktegundum nema ýsu.

Samanburður á 12 mánaða tímabilum milli ára sýnir hins vegar að botnfiskafli er svipaður milli ára á meðan 33% minnkun hefur orðið í uppsjávarafla á tímabilinu.

Magnvísitala á föstu verðlagi er 11,7% hærri nú samanborið við ágúst í fyrra, en á 12 mánaða tímabilinu september 2013 til ágúst 2014 hefur magnvísitalan lækkað um 5% miðað við sama tímabil árið áður.