Afli íslenskra skipa á árinu 2007 var tæp 1.396 þúsund tonn, 73 þúsund tonnum meiri en árið 2006.

Þetta kemur fram í nýju riti, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007 sem nú er komið út hjá Hagstofu Íslands.

Aflaverðmæti var rúmir 80 milljarðar króna og jókst um 5,4% frá fyrra ári.

Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, enda er stórum hluta uppsjávaraflans landað þar, segir á vef Hagstofu.

Aflakaupendur á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu keyptu mestan afla, að andvirði um 14,5 milljarða hvor.

Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða rúm 40%. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.