Á árinu 2005 var afli íslenskra skipa tæp 1.669 þúsund tonn sem er 59 þúsund tonnum minni afli en árið 2004, segir í tilkynningu frá Hagstofunni.

Aflaverðmæti var svipað og fyrra ár eða tæpir 68 milljarðar króna. Unnið var úr stærstum hluta fiskaflans á Austurlandi og einnig var mesta magninu landað þar.

Verðmætasti aflinn fór til vinnslu á höfuðborgarsvæðinu. Af þorskaflanum fór mest í salt og ýsuaflinn sem sló fyrra met í aflamagni var mikið til frystur í landi. Frysting síldaraflans jókst frá árinu 2004 og er nú æ stærri hluti hans frystur annað hvort á landi eða á sjó.