Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júlímánuði var 21,1% meiri en í júlí 2006, sé hann metinn á föstu verði. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn aukist um 1,1% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006 að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Aflinn nam alls 116.879 tonnum í júlí 2007 samanborið við 88.640 tonn í júlí 2006.

Botnfiskafli dróst saman um rúm 5.000 tonn frá júlímánuði 2006 og nam tæpum 33.300 tonnum. Þorskafli dróst saman um 1.900 tonn, ýsuaflinn jókst um rúm 1.200 tonn og ufsaaflinn dróst saman um rúmlega 5.900 tonn.

Flatfiskaflinn var nánast óbreyttur milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 79.500 tonnum og var að stærstum hluta síld, kolmunni og makríll. Aukning í uppsjávarafla nemur rúmlega 31.600 tonnum. Munar þar miklu um rúmlega 21.700 tonn af makríl á móti tæplega 2.700 tonnum í júlí 2006. Skel- og krabbadýraafli var tæplega 2.200 tonn samanborið við tæplega 500 tonna afla í júlí 2006.


Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.