Í upphafi árs voru tollar felldir niður af fatnaði og skóm. Samkvæmt mati Fjármála- og efnahagsráðuneytis átti afnámið að skila að meðaltali 13% verðlækkun til neytenda á þeim vörum sem áður báru tolla. Niðurstöður ASÍ sýna hinsvegar að svo er ekki.

Áætlað var að um 60% vara í vöruflokknum bæru toll fyrir breytingarnar. Því megi áætla að afnám tolla af fötum og skóm ætti að skila um 7,8% lækkun á fötum og skóm í vísitölu neysluverðs.

Af gögnum verðlagseftirlits ASÍ má sjá að árstíðarsveiflur í verði á fötum og skóm er verulegar í kringum sumar- og vetrarútsölur. Þegar vísitalan sé skoðuð nú í apríl m.v. lok árs 2015 má sjá að hún hafi aðeins lækkað um 4% sem er allt of lítið miðað við áætlun verðlagseftirlitsins.

Verslanir hækka verð eftir útsölur

ASÍ segir að eins og staðan er núna á vísitölunni má sjá að verslanirnar hafa hækkað verð aftur eftir útsölur og það töluvert meira en gera mátti ráð fyrir. Samkvæmt útreikningum verðlagseftirlitsins hefði vísitalan átt að enda í um 100 og vera því á sama stað og í janúar 2014.

Sambandið bendur jafnframt á að til viðbótar við afnám tolla hefur gengi krónunnar styrkst undanfarið sem hefði átt að ýta undir enn frekari lækkun á fötum og skóm sem eru að mestu leyti innfluttar vörur. Þess vegna er niðurstaða verðlagseftirlitsins sú að verslanir hafa alls ekki skilað afnáminu að fullu.