Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur hækkað um 5,08% það sem af er degi í 174 milljóna viðskiptum. Gengi félagsins heldur áfram að hækka eftir að fréttir bárust að uppsögnum og fækkun flugvéla Wow air.

Bréf félagsins hafa nú hækkað um 19% frá því lágpunkti sínum eftir að tilkynnt var um að fallið hafði verið frá kaupum á Wow air og að Indigo Partners myndu fjárfesta í Wow air. Það er þó óhætt að segja að ekki hafi verið meira flökt á nokkuru öðru félagi í kauphöllinni á þessu ári en Icelandair.