Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 335,5 stig í febrúar og lækkaði um 0,6% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamati ríkisins).

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár.

Þar sést hvernig íbúðaverð hefur lækkað nánast samfellt s.l. 14 mánuði en vísitala íbúðaverðs náði hámarki fyrir rúmu ári síðan, í janúar 2008, þegar hún mældist 357,4 stig.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitala íbúðaverðs um 3,5%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 4,2% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 5,3%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.