Skuldabréfavísitalan GAMMA:GBI hækkaði um 1% í dag í 24,7 milljarða króna viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 1,3% og GAMMAxi:Óverðtryggt hækkaði um 0,1%.
Viðskipti með óverðtryggð bréf í vísitölunni námu 17,6 milljörðum króna og 7,1 milljarða króna viðskipti voru með verðtryggð skuldabréf.
Dagurinn í gær á skuldabréfamarkaði var sá veltumesti á árinu þegar litið er til markaðsverðmætis. Þá nam velta 28,8 milljörðum króna.