Ákveðið hefur verið halda áfram með 24 tíma opnun Hagkaup í Skeifunni en í tilkynningu frá Hagkaupum kemur fram að í þær sex vikur sem verslunin hefur nú verið opin allan sólarhringinn hafi viðskiptavinir kunna vel að meta þjónustuna.

Í tilkynningunni kemur fram að fjöldi fólks sækir verslunina fram til kl. 2 um nætur og svo hefst ösin aftur upp úr kl. 6.

„Vaktavinnufólki líkar t.d. vel að geta verslað á þeim tíma sólarhrings sem því hentar,“ segir í tilkynningunni.