Gengisvísitalan var við lok markaða 151,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá lokun markaða í gær en 0,9% frá opinberu gengi í gærdag.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 151,2 stig en var í gær 152,5 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 118,8 krónum, Bandaríkjadalur í 74,2 krónum og Sterlingspund í 148,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,1 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum