Gengisvísitalan er nú 176,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 2,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Gildi gengisvísitölunnar hefur slegið met á hverjum einasta degi í þessari viku og krónan veikst í samræmi við það.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 177,3 stig, sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi, en var í gær 172,7 stig sem þá var hæsta opinbera gengið til þessa.

Krónan hefur nú veikst um 5% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 93,3 krónum, Evran í 135 krónum og Sterlingspundið í 170,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 85 krónum, japanskt jen í 0,88 krónum og danska krónan í 18 krónum.