„Þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með hlutabréf Spron er enn í gildi, mun frestun innlausnar hlutdeildarskírteina í eftirfarandi sjóðum gilda áfram.“ Þetta segir í tilkynningu á vefsíðu Kaupþings.

Sjóðirnir sem um ræðir eru ICEQ verðbréfasjóður og Kaupþing Verðbréfaval 1-5. Í tilkynningunni segir að áfram verði tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verði ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveði að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félagsins.

Þar segir einnig að stjórn Kaupthing Investment Funds hafi ákveðið að fresta áfram innlausn með hlutdeildarskírteini Kaupthing Investment Funds - Icelandic Equity.