Nokkur eftirvænting var fyrir opnun Kauphallarinnar í morgun eftir miklar lækkanir undanfarna daga. Óhætt er að segja að byrjunin lofi ekki góðu en það sem af er morgni hefur vísitalan lækkað um 5,14% eða um 182 stig. Öll félög sem viðskipti hafa verið með hafa lækkað og hafa Jarðboranir lækkað um 20% og Landsbankinn um tæplega 9%. Ekkert félag hefur hækkað.