Úrvalsvísitalan endaði í 7.874 stigum í dag og lækkaði um 95.70 stig eða 1,2%. Krónan veiktist um 1,02% í dag og gengisvísitala krónunnar endaði í 122,5 stigum.  Icelandair lækkaði mest í dag eða um 4,49%. Exista lækkaði um 3,19%. Öll félög nema tvö lækkuði í dag en þau sem voru með grænar tölur voru Alfesca og Össur.

Hækkun Úrvalsvísitölunnar það sem af er ári er 22,84% og síðustu 12 mánuði hefur hún hækkað um 45,75%