Áframhaldandi lækkun hefur verið í Kauphöll Íslands í morgun fjórða daginn í röð. Það sem af er morgni hefur úrvalsvísitalan lækkað um rúmlega eitt prósent. Mest hefur lækkunin verið hjá Landsbankanum og Straumi. Það er þó til að létta lund fjárfesta að í dag hefur í fyrsta skipti sést til hækkunar en bréf FL Group hafa hækkað lítillega í mjög litlum viðskiptum.