Líbíska flugfélagið Afriqiyah Airways lætur ekki ástandið þar í landi á sig fá og hefur nú pantað sína fyrstu Airbus A321 vél.

Um leið hefur félagið látið breyta pöntunum á þremur A320 vélum í A321, sem er litlu lengri og stærri en A320 vélarnar.

Afriqiyah Airways hefur þegar fengið sex A320 vélar afhentar og átti 5 pantaðar til viðbótar. Samkvæmt frétt Reuters má gera ráð fyrir því að þeim verði öllum breytt í pantanir á A321.

Afriqiyah Airways pantaði fyrstu vélar sínar frá Airbus árið 2006 og jók við pantanirnar árið 2007.