Sýn hefur fært niður niður viðskiptavild um 2,5 milljarða króna vegna kaupa félagsins á 365 miðla. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallarinnar fyrir skömmu.

Ákvörðunin kemur eftir að framkvæmt var virðisrýrnunarpróf á viðskiptavildinni í samræmi við kröfur reikningsskilastaðla. Í tilkynningunni segir að við lykilforsendur á bak við mat á virðisrýrnuninni sé hægari framgangur samlegðaráhrifa í sameinuðum rekstri félaganna og breytingar á samkeppnismarkaði félagsins.

Þá segir einnig að niðurfærslan er eingöngu reikningshaldsleg og hefur ekki áhrif á sjóðstöðu félagsins, sjóðstreymi þess eða lánaskilmála. Þá hefur niðurfærslan engin áhrif á framtíðarhorfur eða stefnu félagsins. Niðurfærslan mun hafa þau áhrif að viðskiptavild félagsins er færð úr 10.646 milljónum króna í 8.146 milljónir króna og lækkar viðskiptavild sem því nemur. Miðað við bráðabirgðauppgjör félagsins fyrir árið 2019 þá mun EBITDA félagsins vera nálægt 5.505 milljónir króna og tekjur félagsins 19.810 milljónir króna. Afkoma félagsins og eigið fé lækka sem nemur afskriftinni.

Í tilkynningunni er haft eftir Heiðari Guðjónssyni, forstjóra Sýnar:

„Við erum að hreinsa úr efnahagsreikningi áhrif sem byggðu ekki á raunhæfum áætlunum.  Þetta hefur engin áhrif á reksturinn, hvorki í dag né í framtíðinni, heldur er einungis til merkis um að við viljum gera efnahagsreikninginn heilbrigðari.  Þeir sem greina fyrirtækið eru löngu búnir að átta sig á þessu en nú er verið að uppfæra efnahagsreikninginn í takt við raunhæf rekstrarplön.“ Segir Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.