„Þetta gengur út á að fólk sem býr og vinnur á svokölluðum aðgerðasvæðum og er með námslán gæti sótt um afslátt af námslánum,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, nýjum menntamálaráðherra í Fréttablaðinu . Lilja hyggst kanna kosti þess að nýta námslánakerfið til að hvetja fólk til að setjast að í dreifðum byggðum, í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Lilja segir Norðmenn hafa góða reynslu af þessari af þessari leið þar sem fólk getur fengið tíu prósenta lækkun á námslánum árlega hafi það búið á tilgreindum svæðum í tólf mánuði.

„Þar hefur þessu úrræði verið beint inn á svæði þar sem skortur hefur verið á sérfræðimenntuðu fólki,“ segir Lilja. Úrræðið hafi skilað töluverðum árangri í Norður-Noregi og laðað til dæmis lækna og tæknimenntað fólk á strjálbýl svæði og í mörgum tilvikum hafi fólk ílengst á svæðinu eftir að námslán þess eru greidd að fullu.